Héldu að Ed Sheeran sjálfur væri að syngja Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. mars 2015 17:40 Tónlistarstjörnurnar Heiðar Ingi og Daníel Breki.
Daníel Breki McCollough er nýjasta tónlistarstjarna okkar Íslendinga. Nokkrar milljónir netverja hafa notið þess að hlusta á Daníel, sem er tæplega tveggja og hálfs ár, þar sem hann syngur lagið Thinking out loud með Ed Sheeran.Click here for an English version Með honum syngur Heiðar Ingi Árnason sem er kærasti Aldísar Bjarkar Óskarsdóttur, móður Daníels Breka. Strákarnir fara einfaldlega á kostum og lofa netverjar þá félaga en Vísir birti myndbandið af þeim félögum fyrr í dag.Augnablikið þar sem Daníel Breki stillir gítarinn.Tæplega tíu milljónir manna fylgja The Lad Bible á Facebook, síðu sem birtir skemmtileg myndbönd og er óhætt að segja að fylgjendur síðunnar séu ánægðir með þá Daníel Breka og Heiðar. Fjölmargir birta skemmtilegar myndir af Daníel Breka en meðal þeirra er ein þar sem hann virðist vera að stilla plastgítarinn sinn. Tæplega sex þúsund manns hafa lækað þá mynd eina og sér. Fleiri vekja athygli á Daníel Breka að stilla gítar sinn og hafa gaman af.Post by The LAD Bible. Það er hins vegar ekki bara Daníel Breki sem slær í gegn. Heiðar Ingi þykir fara gjörsamlega á kostum í söng sínum og gítarspili. „Hinn gæinn syngur mjög vel,“ segir einn og annar bætir við: „Hann er frábær!“ Þá segja aðrir að þeir hafi hreinlega talið að Ed Sheeran sjálfur væri að syngja en aðdáendur Sheeran taka af allan vafa. Það sé á hreinu að þetta sé ekki Sheeran en söngvarinn sé frábær. „Mér finnst kominn tími til að einhver uppgötvi hæfileikana hjá gæjanum sem syngur í bakgrunni. Þvílík rödd,“ segir enn einn. Heiðar Ingi er hins vegar enginn byrjandi í faginu og áhugasamir geta kynnt sér tónlistarmanninn betur á aðdáendasíðu hans. Þeir Daníel Breki hafa áður vakið athygli fyrir flotta frammistöðu en ábreiða þeirra af Lay Me Down með Sam Smith vakti athygli fyrr á árinu. Hér að neðan má svo sjá myndband Ed Sheeran í heild sinni og dæmi hver fyrir sig hvor útgáfan er betri.
Mest lesið Dásamlegt að koma heim með barnið sem hún þráði svo lengi Lífið Fékk unnustu í afmælisgjöf Lífið Dreymir um að eiga Range Rover Lífið Spilar á flygil innan um risatrukka: „Spurning um líf og dauða fyrir klassíska tónlist“ Lífið Ég hætti að lifa bara af - og fór að LIFA, að vera þátttakandi í lífinu Lífið samstarf Glæsihús umvafið ósnortnu hrauni Lífið Vegleg afmælistilboð á gæðavörum í eldhús og baðherbergi Lífið samstarf Andinn á tökustað í Glæstum vonum: „Spurði fyrst hvort ég gæti verið vondur tvífari“ Lífið „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Lífið Aldís og Kolbeinn keyptu í Kópavogi Lífið Fleiri fréttir Glæsihús umvafið ósnortnu hrauni Frumsýning á Vísi: Stikla úr sýningunni Óskaland Teknó baróninn á Radar á laugardag Fékk unnustu í afmælisgjöf Andinn á tökustað í Glæstum vonum: „Spurði fyrst hvort ég gæti verið vondur tvífari“ Dásamlegt að koma heim með barnið sem hún þráði svo lengi Dreymir um að eiga Range Rover Spilar á flygil innan um risatrukka: „Spurning um líf og dauða fyrir klassíska tónlist“ GameTíví: Óli heimsækir Silent Hill Hlátrarsköll á svartri kómedíu Yung Filly ákærður fyrir nauðgun og líkamsárás Mikil stemning á lokahófi RIFF Patrik í Flórída: „Það er í lagi með mig“ Aldís og Kolbeinn keyptu í Kópavogi Forsetahjónin létu sig ekki vanta og eltu veðrið Fæðing sonar Birgittu Lífar í LXS „Tilveran breyttist að eilífu til hins betra“ „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Edda Sif og Vilhjálmur eignuðust dreng Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin á mér“ Í vandræðum í Bláa lóninu Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Geitin er risin fyrr en nokkru sinni Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Sjá meira