Lífið

Næsta plata Rihönnu á að vera tímalaus

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Rihanna hefur verið iðin við kolann og gaf út sjö breiðskífur á átta árum.
Rihanna hefur verið iðin við kolann og gaf út sjö breiðskífur á átta árum. vísir/getty
Söngkonan Rihanna vill að áttunda sólóplata sín búi yfir tímalausum hljómi og sagði í viðtalið við MTV að hún vildi geta komið fram og sungið lögin á plötunni eftir fimmtán ár.

En söngkonan sagði einnig í viltalinu að hún fyndi fyrir því að sig langaði ekki eins mikið til þess að flytja lög af fyrri plötum sínum.

Seinasta plata söngkonunnar, Unapologetic kom út árið 2012 en þann 24. janúar síðastliðinn var fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu hennar gefin út. Það er lagið FourFiveSeconds sem Rihanna gerði ásamt Kanye West og Paul McCartney en sá fyrrnefndi er upptökustjóri plötunnar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×