Innlent

Leggja fram tillögu um bann við samviskufrelsi á kirkjuþingi

Birgir Olgeirsson skrifar
Séra Guðrún Karls Helgudóttir er á meðal þeirra sem leggja fram tillögu á kirkjuþingi sem miðast að því að prestum verði meinað að mismuna fólki eftir kynhneigð.
Séra Guðrún Karls Helgudóttir er á meðal þeirra sem leggja fram tillögu á kirkjuþingi sem miðast að því að prestum verði meinað að mismuna fólki eftir kynhneigð. Vísir
Kirkjuþing verður sett í Grensáskirkju á morgun og verður þar lögð fram tillaga um að prestum verði meinað um að mismuna fólki eftir kynhneigð. Varðar tillagan svokallað samviskufrelsi sem verður líklegast til umræðu á þessu kirkjuþingi en þar munu meðal annarra flytja ávörp við setningu þingsins Agnes M. Sigurðardóttir biskup og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í fjarveru Ólafar Nordal innanríkisráðherra sem er á landsfundi Sjálfstæðisflokksins.

Að tillögunni standa prestarnir séra Guðrún Karls Helgudóttir og séra Vigfús Bjarni Albertsson ásamt Ragnheiði Ástu Magnúsdóttur, Guðbjörgu Arnardóttur og Höllu Halldórsdóttur sem eiga sæti á kirkjuþingi.

Þingið skipa 12 vígðir einstaklingar, ýmist prestar eða djáknar, ásamt 17 manns úr sóknarnefndum. Alls sitja því 29 manns þingið og þarf yfir 50 prósent atkvæða til að fá tillögu samþykkta. Guðrún segist vongóð um að tillagan hljóti jákvæð viðbrögð á þinginu.

„Ég tel að þetta fljúgi í gegn,“ segir Guðrún í samtali við Vísi um málið. Verði tillagan samþykkt segir Guðrún að ljóst sé að vilji yfir stjórnar kirkjunnar sé á þá leið að um presta gildi það sama og um borgaralega vígslumenn. „Það er að segja; við fáum ekki að neita fólki um þjónustu vegna kynhneigðar.“

Kirkjuþingið verður sett klukkan níu á morgun en að lokinni setningarathöfninni, sem er opin öllum, hefst þingfundur klukkan ellefu. Guðrún á frekar von á því að tillagan verði tekin fyrir á sunnudag.


Tengdar fréttir

Margir vilja neita samkynja pörum

Dómsmálaráðherra Texas, næstfjölmennasta fylkis Bandaríkjanna, segir niðurstöðu hæstaréttar þar í landi lögleysu. Opinberir starfsmenn fá ókeypis lögfræðing ef þeir neita samkynja pörum um þjónustu.

Kirkjuþing með hreina samvisku

„Af samvisku presta“ nefnist grein sem birtist í Fréttablaðinu 19. mars síðastliðinn og varð Kirkjuþingi unga fólksins hvati til að vekja athygli á samviskufrelsi presta og þeirri mismunun á grundvelli kynhneigðar sem í henni felst.

Öll jöfn að hjúskaparlögum

Hart hefur verið deilt á presta Þjóðkirkjunnar vegna heimildarinnar til að gefa saman hjón. Það hefur verið réttmæt gagnrýni í ljósi þess að Íslendingar vilja vera til fyrirmyndar í mannréttindabaráttu. Það hefur líka verið réttmætt í ljósi þess að þjónusta prestanna krefst þess að þeir mæti hverjum einstaklingi á sama hátt og Jesús gerði

Hið meinta samviskufrelsi

Það er skilningur okkar og sannfæring byggð á upplýstri samvisku, að kirkjan geti aldrei meinað tveimur einstaklingum um hjónavígslu á grundvelli kynhneigðar uppfylli þeir lögformleg skilyrði þess að ganga í hjúskap.

Hjónabandið, frelsið og þjóðkirkjan

Í Fréttablaðinu 14. maí sl. er frétt um samþykkta tillögu kirkjuþings unga fólksins um "að reglur þær sem nú eru í gildi um samviskufrelsi presta sem heimila prestum að neita fólki um þjónustu á grundvelli kynhneigðar verði afnumdar“ eins og segir í tillögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×