Menning

Hefðbundin braglist lifir enn góðu lífi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Ég hef ekkert á móti óbundnum ljóðum en tel að ljóðformin geti lifað hlið við hlið,“ segir Ragnar Ingi.
"Ég hef ekkert á móti óbundnum ljóðum en tel að ljóðformin geti lifað hlið við hlið,“ segir Ragnar Ingi. Fréttablaðið/Vilhelm
„Góðu fréttirnar eru þær að háttbundinn kveðskapur virðist vera í sókn hjá þjóðinni, það sýnir meðal annars gróska í útgáfu bóka með slíku efni,“ segir doktor Ragnar Ingi Aðalsteinsson, ritstjóri Stuðlabergs, tímarits sem helgað er hefðbundinni ljóðlist.

Nýtt hefti er að koma út og þar er getið um tíu nýjar ljóðabækur með rími og stuðlum, ýmist eldri kveðskap eða ortum upp á síðkastið.

Aðalviðtalið í hinu nýja hefti er við Böðvar Guðmundsson rithöfund sem ólst upp við ljóð og söng sem sjálfsagðan hluta af deginum. Einnig er rætt við Kristján Þórð Hrafnsson rithöfund um nýja ljóðabók hans með tuttugu og fjórum sonnettum.

Konur eru líka í brennidepli í heftinu. Getið er um væntanlega ljóðabók eftir Guðrúnu Stefánsdóttur frá Fagraskógi, systur Davíðs skálds, og meðal þess sem Ragnar Ingi vekur athygli á er bókin Líf og list Helgu Pálsdóttur frá Grjótá. Helga orti Konuvísur snemma á síðustu öld til mótvægis við bændabragi og formannavísur sem þá tíðkuðust, og þar fengu um sextíu konur sína vísuna hver.

Þá lýsir Sveinn Jónsson í Kálfskinni því líka hvernig Eyfirðingar munu minnast þriggja alda afmælis Látra-Bjargar á næsta ári en konan sú var kröftugt skáld, eins og margir vita.

Ragnar Ingi segir áskrifendur hópast að Stuðlabergi úr öllum áttum og er auðvitað harla kátur með það.

Hann vill veg hefðbundinna bragarhátta sem mestan og telur kennara landsins þurfa að vera duglega við að halda þeim að nemendum, til jafns við aðra ljóðlist.

„Það er þó alls ekki þannig að ég sé á móti órímuðum ljóðum,“ tekur hann fram. „Heldur eiga þau og hefðbundinn kveðskapur að lifa hlið við hlið.“ 

Í ljósi góðs gengis íslenskra kvikmynda, íþróttamanna og glæpasagnahöfunda erlendis spurði Stuðlaberg hagyrðinga: Eru Íslendingar þá eftir allt saman bestir?

Ólína Þorvarðardóttir svaraði spurningunni á þessa leið:



Íþrótt sanna orðs og handa

iðkar þjóðin kná og vís,

stórvirkin að ströndum landa

streyma ört við lof og prís



Já, íslensk þjóð svo ung og dreymin

afrek mörg í skauti ber.

Nú sem stendur hálfan heiminn

hefur lagt að fótum sér.

Pétur Ingvi Pétursson frá Höllustöðum svaraði þannig:

Um það vissan virðist blendin

og vafin háði,

nema meirimáttarkenndin

miklu ráði.

Þórarinn Már Baldursson hafði þessa skoðun:

Þó að eigi á Fróni flestir

framtíð bjarta

Íslendingar eru bestir

í að kvarta.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×