Lífið

Saga Garðars kemur inn í Mið-Ísland

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Mið-Ísland hópurinn og Saga Garðars í eina sæng.
Mið-Ísland hópurinn og Saga Garðars í eina sæng. mynd/björn bragi /vísir/daníel
Saga Garðarsdóttir mun fylla það skarð sem Anna Svava Knútsdóttir skilur eftir sig hjá Mið-Íslandi. Anna Svava tók þátt í sinni síðustu sýningu, í bili, fyrir þremur dögum, en hún er kasólétt og komin að því að eignast barnið.



„Jú, það er rétt. Ég er að fylla í feit óléttufótspor Önnu Svövu“ segir Saga. Fyrsta sýning hennar var um helgina og hún verður hluti af sýningunni út febrúar. Hún hefur áður tekið þátt með hópnum stöku sinnum.

Einnig er áætlað að Bergur Ebbi Benediktsson taki eina sýningu með Mið-Íslandi þegar hann kemur hingað í frí og Þorsteinn Guðmundsson mun að lokum leysa Sögu af hólmi.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×