Allt að verða klappað og klárt fyrir tónleika Ásgeirs Trausta á Esjunni Stefán Árni Pálsson skrifar 29. maí 2015 16:51 Tónleikarnir eru opnir öllum sem hafa áhuga.
Hátt í þrjátíu manns hafa í dag unnið hörðum höndum að undirbúningi stórtónleika Ásgeirs Trausta á Esjunni sem Nova og þyrluþjónustan Helo standa fyrir í kvöld. Ekkert hefur verið til sparað og þurfti 12 þyrluferðir til að koma græjum og búnaði upp að Steini þar sem tónleikarnir fara fram. Nú stendur yfir vinna við að setja sviðið upp en útkoman verður einstök að sögn Guðmundar A. Guðmundssonar, markaðsstjóra Nova. „Hér er algjör bongóblíða og allt að verða klappað og klárt. Sviðið verður þannig uppsett að gestir sitja í brekku og Ásgeir og hinir tónlistarmennirnir verða með borgina í allri sinni dýrð í bakgrunni.” Herlegheitin hefjast kl. 18 þegar Natalie G. byrjar að þeyta skífum, og að því loknu stígur Ásgeir á svið ásamt hljómsveit. Hópurinn er nýkominn heim af tónleikaferðalagi um Ástralíu og hefur Ásgeir tilkynnt að tónleikarnir á Esjunni í kvöld og Hörpu í júní verði þeir allra síðustu í bili, eða þangað til næsta plata kemur út. Þyrluþjónustan Helo verður með þyrlur á staðnum og geta tónleikagestir flogið upp að tónleikasvæðinu frá Esjurótum, gegn gjaldi. Frítt er inn á tónleikarnir og ekkert aldurstakmark. Búist er við að fjöldi fólks leggi leið sína á tónleikana og gera má ráð fyrir að bílastæðin við Esjurætur verði fullnýtt. Því hefur Nova brugðið á það ráð að bjóða gestum upp á ókeypis rútuferðir að Esju frá iðnaðarsvæði í nágrenninu, sem keyrt er fram hjá á leið út úr bænum að fjallinu. Það verður vel merkt og ætti ekki að fara fram hjá fólki. Fjöldi mun sjá um gæslu og umferðarstjórnun en þess má geta að björgunarsveitin Kjölur verður á svæðinu.MYNDIR/STEFÁN PÁLSSONMYNDIR/STEFÁN PÁLSSONMYNDIR/STEFÁN PÁLSSONTónleikarnir fara fram á Esjunni. Ásgeir er í fyrsta sinn á Esjunni.MYNDIR/STEFÁN PÁLSSON
Mest lesið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Lífið Fögnuðu væntanlegri komu Eftirmála á sjónvarpsskjáinn Bíó og sjónvarp Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar Lífið „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Menning Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Lífið Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Lífið Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Lífið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Lífið Fleiri fréttir Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Geitin er risin fyrr en nokkru sinni Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sjá meira