Lífið

Spilverk mætir á svið með Diddú

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Diddú heldur upp á 40 ára starfsafmæli sitt um þessar mundir.
Diddú heldur upp á 40 ára starfsafmæli sitt um þessar mundir.
Spilverk þjóðanna mun mæta í heild sinni á afmælistónleika Diddúar, Sigrúnar Hjálmtýsdóttur, sem fara fram í haust. Þá fer Diddú yfir 40 ára söngferil sinn.

Spilverkið mun mæta í heild sinni, einnig Sigurður Bjóla sem hefur ekki komið fram á tónleikum í um tvo áratugi. Auk Sigurðar og Diddúar voru þeir Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson í sveitinni, sem varð til í Menntaskólanum við Hamrahlíð, Á tónleikunum mun Diddú syngja klassísk lög jafnt sem popplög, en þeir verða í september og hefst miðasala í lok vikunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×