Lífið

Óskarsverðlaunahafi heldur fyrirlestur um gervigreind í kvikmyndum

Paul Debevec og Hannes Högni Vilhjálmsson.
Paul Debevec og Hannes Högni Vilhjálmsson. Vísir/Pjetur
Í dag heldur Paul Debevec, tölvunarfræðingur, tæknibrellumeistari og Óskarsverðlaunahafi fyrirlestur á alþjólegu málþingi, ANIREY, í Háskólanum í Reykjavík. Þar verður rætt um framtíð teiknimyndagerðar og sýndarveruleika.

„Paul hefur þróað tækni sem gerir kvikmyndaframleiðendum kleift að búa til sýndarveruleika þar sem hægt er að setja leikara í aðstæður sem eru ekki til og hann hefur aldrei verið í. Þetta er það raunverulegt að við sjáum ekki muninn á þessu og raunveruleikanum,“ segir Hannes Högni Vilhjálmsson, dósent í tölvunarfræði og forstöðumaður gervigreindarseturs Háskólans í Reykjavík.

Tæknin virkar þannig að leikarinn er skannaður og þannig búið til nokkurs konar sýndarveruleikaklón.

Leikstjórinn getur þannig sett „klónið“ í aðstæður sem eru ekki til, en leikarinn ljær honum bara rödd sína og hreyfingar. „Þróunin er síðan, og það er það sem við hjá gervigreindarsetrinu erum að skoða, að gera klónin greind þannig að þau geti fylgt leikstjórn líka,“ segir Hannes. Hann segir það einstaklega merkilegt að fá hann hingað heim og að það sé augljóst merki þess að mikið sé að gerast á Íslandi í þessum geira. „Það er fólk hér heima sem er að vinna að tæknibrellum fyrir stórmyndir og ég held að fólk sé yfirleitt ekki að gera sér grein fyrir hversu langt þetta er komið og hvað sé búið að gerast.“

Paul Debevec hefur unnið að þessari tækni í fimmtán ár, en hún var fyrst notuð í kvikmyndinni Matrix. „Þá var hún notuð á umhverfið, en nú höfum við þróað þetta þannig að skanninn les hvernig ljósið fellur á andlitið og þannig hefur okkur tekist að gera andlitið enn nákvæmara,“ segir Debevec.

Vonast hann til þess að hægt verði að þróa þessa tækni þannig að hún nýtist í ódýrari kvikmyndagerð, í kennslu og á söfn. Í fyrra skönnuðu þeir inn Bandaríkjaforseta, Barack Obama, og prentuðu svo út nákvæma brjóstmynd af honum í þrívíddarprentara. „Hvíta húsið samþykkti að leyfa okkur að skanna hann, þar sem það vill styðja við þessa tækni og þrívíddarprentun. Það var mjög gaman að fá að vinna með forsetanum,“ segir hann að lokum. adda@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×