Lífið

Önnur bókin á þremur mánuðum

Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar
Nanna Rögnvaldardóttir
Nanna Rögnvaldardóttir Vísir/Björn Árnason
Nanna Rögnvaldardóttir gefur út nýja bók um mánaðamótin.

Bókin, Sætmeti án sykurs og sætuefna, inniheldur sykurlausar uppskriftir sem Nanna hefur þróað síðasta árið.

„Dóttir mín hætti að borða sykur svo ég fór að leita að uppskriftum fyrir hana og fyrir sex mánuðum hætti ég svo að borða sykur líka.

Uppskriftirnar hafa gefið góða raun og ég vil leyfa öðrum að prófa. Fyrir mér er sykur samt ekki eitur, við borðum bara of mikið af honum.“

Síðasta bók Nönnu kom út fyrir þremur mánuðum, svo það er nóg um að vera hjá henni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×