Menning

Chaplin og Sinfónían

Magnús Guðmundsson skrifar
Snilld Chaplins nýtur sín vel í meistarverki hans Nútímanum við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Snilld Chaplins nýtur sín vel í meistarverki hans Nútímanum við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Í kvöld og á laugardag heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands bíó-tónleika í Eldborg í Hörpu. Kvikmynd Chaplins Nútíminn verður sýnd á stóru tjaldi og hljómsveitin flytur tónlistina undir stjórn Franks Strobel. Á föstudag hefjast bíó-tónleikarnir kl. 19.30 en á laugardag verður boðið upp á sannkallað þrjúbíó.

Hljómsveitarstjóri verður hinn þýski Frank Strobel sem hefur margsinnis komið til Íslands með snilldarverk kvikmyndasögunnar í farteskinu.

Nútíminn er frá árinu 1936 og er talin til helstu afreka Chaplins og er vissulega ein af vinsælustu kvikmyndum þessa mikla meistara þöglu myndanna. Chaplin hugðist upphaflega láta myndina verða sína fyrstu talmynd en hætti við það af ótta við að með því myndi geðþokki litla flækingsins bíða skaða. Myndin er samt ekki alveg þögul vegna þess að Chaplin syngur eitt lag á hrognamáli í einu af mörgum drepfyndnum atriðum myndarinnar.

Tónlist Chaplins er óaðskiljanlegur hluti kvikmynda hans. Líkt og Wagner notar hann tónlistina sem leiðarstef í verkum sínum og er hin sígilda dægurperla Smile ástarstefið í Modern Times. Í því kristallast í raun inntak myndarinnar: brostu og horfðu bjartsýnn fram á veginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×