Innlent

Fiskistofa flytur í bráðabirgðahúsnæði á Akureyri

Atli Ísleifsson skrifar
Höfuðstöðvar Fiskistofu munu flytjast norður 1. janúar 2016.
Höfuðstöðvar Fiskistofu munu flytjast norður 1. janúar 2016. Vísir/Valli
Fiskistofa mun flytja í bráðabirgðahúshæði að Norðurslóð 4 á Akureyri sem í daglegu tali er nefnt Borgir.

Húsnæðið er leigt til og með 31. mars á næsta ári en til stendur að auglýsa eftir framtíðarhúsnæði fyrir höfuðstöðvar Fiskistofu á Akureyri í samstarfi við Framkvæmdasýslu ríkisins.

Í frétt á vef Fiskistofu segir að undirbúningur fyrir opnun höfuðstöðva Fiskistofu á Akureyri sé nú í fullum gangi en höfuðstöðvar stofnunarinnar munu flytjast norður 1. janúar 2016.

„Ljóst er að starfsstöð sú sem Fiskistofa hefur haft á Akureyri til margra ára rúmar ekki fleiri starfsmenn en þar voru fyrir og var því leitað að húsnæði til bráðabirgða til að bregðast við fjölgun starfsmanna nú og á næstu mánuðum.

Þann 14. september sl. var undirritaður samningur við Reiti fasteignafélag hf. um leigu á skrifstofuhúsnæði að Norðurslóð 4 á Akureyri sem í daglegu tali er nefnt Borgir. Um tímabundna ráðstöfun er að ræða og er húsnæðið leigt til og með 31. mars á næsta ári,“ segir í fréttinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×