Seattle Seahawks tryggði sér 28-22 sigur í framlengingu og mætir New England Patriots í Super Bowl, úrslitaleik NFL-deildarinnar, eftir tæpar tvær vikur.
Það er ekki skrítið þótt að bandarískir fjölmiðlar noti orðið kraftaverk en svo veik var vonin að margir stuðningsmenn Seattle Seahawks voru farnir af vellinum þegar Seahawks liðið kom sér aftur inn í leikinn.
Green Bay Packers var 16-0 yfir í hálfleik þar sem sóknarleikur Seattle Seahawks var í molum og leikstjórnandinn Russell Wilson hafði kastað boltanum þrisvar sinnum frá sér.
Staðan var síðan nánast vonlaus þegar Wilson kastaði boltanum frá sér í fjórða sinn og Packers-liðið var 19-7 þegar aðeins fimm mínútur voru eftir.
En Seattle Seahawks tókst að skora tvisvar og þótt að vallarmark frá Green Bay Packers hafi komið liðinu í framlengingu þá skoraði Seahawks úr fyrstu sókn hennar og tryggði sér ótrúlegan sigur
Tómas Þór Þórðarson lýsti leiknum í beinni á Stöð 2 Sport í nótt og það er hægt að sjá kraftaverkaendurkomu Seattle Seahawks í myndbandinu hér fyrir neðan.
Það er þegar öruggt að það verður talað um þennan leik aftur og aftur á næstu árum enda ekki á hverjum degi sem lið kasta frá sér sigri þegar svona mikið er undir.