Lífið

Fjórtán ára frum-kvöðull bjó til tölvu

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hinn fjórtán ára gamli Jens Elí Gunnarsson stefnir á að verða verkfræðingur.
Hinn fjórtán ára gamli Jens Elí Gunnarsson stefnir á að verða verkfræðingur. Vísir/Ernir
„Ég er búinn að vera að gera þetta frá því ég var fimm ára og hef mjög gaman af þessu,“ segir uppfinningamaðurinn og föndrarinn Jens Elí Gunnarsson. Hann er aðeins fjórtán ára gamall og hefur frá fimm ára aldri verið ákaflega iðinn við það að búa til ýmsa hluti úr nánast engu.

Nýjasta uppfinning hans er Wii-fartölva sem er í raun einstök og kallar hann uppfinninguna Grape Computer. „Þetta er í raun bæði Wii-tölva og DVD-spilari, það er skjár í henni og hún gengur fyrir einni snúru. Hún er með hátalara og heyrnartól og maður getur slökkt og kveikt á þeim hlutum sem eru í tölvunni. Þetta byrjaði samt allt á því á að frændi minn kom með skjá til mín, svo stytti ég allar snúrur til að þær myndu passa í boxið sem hýsir tölvuna. Svo var nóg pláss eftir og setti ég þá DVD-spilara boxið þannig að ég get spilað og horft,“ útskýrir Jens Elí.

Þessi nýja uppfinning hans er þó ekki fullkláruð. „Ég á eftir að laga lúkkið aðeins,“ bætir Jens Elí við og hlær.

Einstök tölva, blanda af Wii-tölvu og DVD-spilara.Vísir/Ernir
Spurður út í uppruna fiktsins segir Jens Elí að frændur hans hafi átt sinn þátt í að kveikja áhugann á uppfinningaseminni. „Ég byrjaði hjá frændum mínum og var mikið að skoða hvað þeir voru að gera. Ég var líka mikið að skrúfa í sundur sjónvörp og svoleiðis. Svo fór ég að skoða á netinu og gúglaði setninguna how to make something. Ég gúglaði meðal annars hvernig á að gera Play Station-fartölvu,“ segir Jens Elí.

Langar að verða verkfræðingur

Í föðurfjölskyldu hans er mikið af iðnhönnuðum og því mikið verksvit og áhugi í blóðinu. Hann fór svo fljótlega í búðina Íhluti og létu starfsmenn búðarinnar hann hafa stóra bók með hlutum sem henta í smíði líkt og Jens Elí fæst við. Þá er hann tíður gestur í hinum ýmsu byggingavöruverslunum þegar hann er í leit að hinum ýmsu hlutum.

Í framtíðinni langar hann að verða verkfræðingur. „Ég er að vinna hjá pabba mínum þegar ég er ekki í skólanum en hann er húsasmiður. Ég hef gaman af því að smíða og nota svo launin sem ég fæ frá pabba til að kaupa hluti til að búa til hitt og þetta.“

Byssa sem Jens Elí bjó til en hún skýtur teygjum.Vísir/Ernir
Það ætti að koma fáum á óvart að Jens Elí stendur sig vel í smíði í skólanum. „Ég fæ alltaf 10 í smíði,“ segir Jens Elí og hlær. „Ég hef verið að reyna að finna nám á netinu fyrir unglinga sem hafa áhuga á að læra ýmislegt um svona tækni og hönnun. Það er samt yfirleitt allt á háskólastigi, því miður,“ bætir Jens Elí við, en hann vill ólmur komast í verkfræðitengt nám sem fyrst.

Þó að hann komist ekki í nám tengt áhugamáli sínu fyrst um sinn smíðar hann hina ýmsu hluti og má þar nefna trébyssu sem skýtur nokkrum teygjum í einu og hleður sig, Iron Man-hjálm með ljósi inni í og stól, svo sitt hvað sé nefnt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×