Sport

Djokovic sló út ríkjandi meistara og mætir Murray í úrslitum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Novak Djokovic.
Novak Djokovic. Vísir/Getty
Það verða Serbinn Novak Djokovic og Bretinn Andy Murray sem spila til úrslita í einliðaleik karla á opna ástralska mótinu í tennis.

Novak Djokovic tryggði sér sætið í úrslitaleiknum með því að vinna Svisslendinginn Stan Wawrinka 7-6 (7-1) 3-6 6-4 4-6 og 6-0.

Leikurinn var mjög jafn en Djokovic nýtti sér vel mistök Wawrinka ekki síst í lokasettinu sem Serbinn vann 6-0.

Stan Wawrinka vann opna ástralska mótið í fyrra en hann sló þá Djokovic út í átta manna úrslitunum.

Novak Djokovic er þar með kominn í sinn fimmtánda úrslitaleik á risamóti en hann hefur unnið ástralska mótið fjórum sinnum, síðast árið 2013 eftir einmitt sigur á Andy Murray í úrslitaleik.

Andy Murray hefur unnið tvo úrslitaleiki á móti Djokovic eða á Wimbledon-mótinu 2013 og á opna bandaríska mótinu árið 2012.

Novak Djokovic og Stanislas Wawrinka.Vísir/Getty

Tengdar fréttir

Serena Williams og Sharapova mætast í úrslitaleiknum

Það verður einvígi á milli Bandaríkjanna og Rússlands í úrslitaleik í einliðaleik kvenna á opna ástralska mótinu í tennis en þær Serena Williams og Maria Sharapova tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×