Fótbolti

Pogba frá í tvo mánuði

Pogba haltrar af velli gegn Dortmund.
Pogba haltrar af velli gegn Dortmund. vísir/getty
Juventus varð fyrir áfalli í leiknum gegn Dortmund í Meistaradeildinni.

Þá meiddist miðjumaðurinn magnaði, Paul Pogba, og nú er staðfest að hann verður frá í tvo mánuði.

Þetta er skellur fyrir Juve sem er komið í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. Liðið er þó svo gott sem búið að tryggja sér ítalska meistaratitilinn enda með 14 stiga forskot í deildinni.

Pogba á möguleika á því að ná seinni leiknum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar ef Juventus tekst að komast þangað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×