Lífið

Búast við öllum meðlimum

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Wu-Tang Clan Hljómsveitin hefur starfað frá árinu 1992.
Wu-Tang Clan Hljómsveitin hefur starfað frá árinu 1992. Vísir/Getty
Rapparinn Methood Man, sem einna þekktastur er fyrir að vera meðlimur Wu-Tang Clan, deildi á Instagram-síðu sinni texta þar sem kemur fram að hann sé ekki með á Evróputúr sveitarinnar, sem líkt og kunnugt er kemur fram á Secret Solstice-hátíðinni sem fer fram hér á landi 19.-21. júní næstkomandi.

„Þegar við bókuðum þá fyrir nokkrum mánuðum þá bókuðum við Wu Tang Clan,“ segir Ósk Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi hátíðarinnar.

„Við höfum ekki fengið neina tilkynningu frá þeim eða þeirra teymi um að hann komi ekki,“ segir hún og bætir við að sveitin sé fjölmenn og eftir því sem þau best viti komi allir níu meðlimir sveitarinnar til landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×