Erlent

Kínversk ungmenni með mátunarklefa á heilanum vegna kynlífsmyndbands

Birgir Olgeirsson skrifar
Uniqlo hefur aldrei verið vinsælli í Peking en eftir mátunarklefamyndbandið.
Uniqlo hefur aldrei verið vinsælli í Peking en eftir mátunarklefamyndbandið. Vísir/Getty
Kínverski samfélagsmiðillinn Weibo fór á hliðina í vikunni vegna kynlífsmyndbands sem var dreift þar. Myndbandið tók ungt par í mátunarklefa í verslun Uniqlo í Peking. Yfirvöld urðu ævareið vegna myndbandsins og sögðu það móðgun við sósíalísk gildi landsins og verslunin reyndi hvað hún gat að hreinsa sig af þessu atviki.

Bandaríska fréttastofan CNN segir myndbandið sýna ungt par, nakta konu og svartklæddan karlmann, stunda kynlíf inn í mátunarklefa Uniqlo í Peking á meðan maðurinn tekur verknaðinn upp á símann sinn. CNN segir manninn heyrast hvísla að konunni: „Kallaðu mig eiginmanninn þinn“ og „Segðu að við verðum saman“.

71 sekúnda

Myndbandið er 71 sekúnda að lengd og margir afar forvitnir um að vita hvaða fólk þetta er og hvenær myndbandið var tekið. Undir lok myndbandsins heyrist kvenmannsrödd hljóma úr kallkerfi verslunarinnar:

„Kæru viðskiptavinir, verið velkomin í Uniqlo-verslunina í Sanlitun. Það eru engir mátunarklefar á fyrstu hæð. Vinsamlegast farið á aðra eða þriðju hæð ef þið viljið máta föt.“

Myndbandinu var komið fyrir á Weibo-samfélagsmiðlinum á þriðjudagskvöld og var því dreift af fjölda notenda. Buzzfeed greindi frá því á miðvikudag að 7 af 10 vinsælustu umræðuefnunum á Weibo voru um myndbandið.

Weibo fékk tiltal frá yfirvöldum

Í Kína er klám bannað og var því flestum færslum eitt sem tengdust Uniqlo-myndbandi. Veittu yfirvöld þar í landi stjórnendum Weibo tiltal fyrir að hafa ekki stöðvað útbreiðslu myndbandsins.

Einhverjir hafa komið með þá tilgátu að myndbandið hafi verið útpæld markaðsbrella af hálfu verslunarinnar  en Uniqlo tók það fram í yfirlýsingu að sú væri ekki raunin: „Við viljum minna almenning á að nota mátunarklefann okkar á viðeigandi hátt,“ sagði í yfirlýsingunni.

„Viltu kíkja með mér í Uniqlo?“

Þrátt fyrir áminningar yfirvalda og verslunarinnar til almennings þá verður æðið sem fylgdi þessu myndbandi ekki stöðvað í bráð og mátunarklefi orðinn að nokkurs konar tískuorði á meðal ungmenni og spurningin: „Viltu kíkja með mér í Uniqlo?,“ orðin ein sú vinsælasta þegar kemur að við reynslu, að því er fram kemur á vef Huffington Post.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×