

Stefnubreyting við sameiningu stofnana
Síðustu ríkisstjórnir hafa unnið að þessu. Stórar sameiningar áttu sér stað á kjörtímabili ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Aðferðafræðin við sameiningarnar var að starfsfólk stofnananna fékk að halda starfi sínu og hugað var þannig að velferð mannauðsins í umbótaferlinu enda lykillinn að því að vel takist til.
Í fyrsta fjárlagafrumvarpi núverandi ríkisstjórnar boðaði fjármálaráðherra stórfelldar breytingar á ríkisrekstrinum. Meðal þeirra var fækkun opinberra stofnana um 50 og haldið var þannig áfram á þeirri vegferð sem hófst rétt fyrir aldamótin 2000. Framtíðarsýnin sem birtist í rökunum fyrir ákvörðuninni var einnig skýr en í frumvarpinu var eitt höfuðmarkmiðanna að einfalda ríkiskerfið og minnka umfang þess með það að leiðarljósi að auka skilvirkni.
Þó svo að markmiðið sé það sama hefur margt breyst. Ef litið er til þeirrar aðferðafræði sem notuð hefur verið við sameiningu stofnana á undanförnum árum má sjá að nú hefur átt sér stað stefnubreyting. Hún birtist með þeim hætti að stjórnvöld telja nú mikilvægt, jafnvel nauðsynlegt, að segja öllu starfsfólki upp við sameiningar stofnana. Nýlegar sameiningar sýna þetta með skýrum hætti. Nýjasta dæmið er frá síðasta starfsdegi Alþingis fyrir sumarfrí með stofnun Menntamálastofnunar.
SFR telur þessa leið ranga. Einfaldlega vegna þess að verkefnin sem eru færð til nýrrar stofnunar eru hin sömu og voru hjá fyrirrennurum hennar og því er aðeins um breytingar á byggingu stofnana að ræða en ekki um niðurlagningu starfa og verkefna svo um ræðir. Starfsmönnum eru ýmist boðin störf hjá nýrri stofnun við sömu verkefni og áður, eða þeim eru boðin ný verkefni. Það er verulegt áhyggjuefni að nú virðist vera að færast í aukana að settur sé fyrirvari í lögin um að lækka megi starfsfólk í starfsstigi.
Standi vilji stjórnvalda til þess að gera breytingar á störfum er til samræmis við meðalhófsreglu að flytja störfin en ekki leggja þau niður. SFR telur grundvallaratriði að gætt sé jafnræðis gagnvart opinberum starfsmönnum við sameiningu stofnana. Engin rök eru fyrir því að réttarstaða starfsfólks þeirra stofnana sem lagðar eru niður nú sé lakari en réttarstaða starfsmanna við sambærilegar sameiningar sem hafa átt sér stað.
Stjórnvöld hafa ekki markað sér opinbera stefnu um hvernig þau vilja standa að verkefnum eins og sameiningum stofnana. Því hafa þau ekki heldur tekið ákvörðun um hvernig þau vilja búa að mannauðnum við slíkar aðstæður. Hingað til hefur það verið á forræði einstakra stofnana eða ráðuneytis. Þetta er algjörlega ótækt. Stjórnvöld verða að vita hvert þau ætla að fara og hvernig þau ætla að komast þangað.
Tryggja þarf að á bak við ákvörðun um sameiningu stofnana liggi fjárhagslegar, rekstrarlegar, stjórnsýslulegar, samfélagslegar, faglegar og hugsanlega pólitískar forsendur þannig að markmiðið með breytingunum sé á hreinu og leiðirnar að því séu skýrar.
Undirbúningur er alltaf mikilvægur enda getur ávinningur af umbótum orðið lítill sem enginn ef ekki er staðið vel að málum frá upphafi. Stjórnsýslan á að starfa með faglegum hætti og gæta jafnræðis og meðalhófs enda er mikilvægt að gætt sé samræmis við ákvörðunartöku stjórnvalda.
Skoðun

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar

Á að láta trúð ráða ferðinni?
Ingólfur Steinsson skrifar

Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Ofþétting byggðar í Breiðholti?
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð?
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar

Hugsanaskekkja forsætiráðherra í Evrópumálum – Þetta eru tvö skref!
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Opið bréf til ráðherranna Hönnu Katrínar og Ingu Sæland - blóðmeramálið
Árni Stefán Árnason skrifar

Vinnubrögð Carbfix eru ámælisverð
Ólafur Sigurðsson skrifar

Öllum til hagsbóta að bæta hag nýrra Íslendinga
Marta Wieczorek skrifar

Raunveruleg úrræði óskast takk!
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

(Ó)merkilegir íbúar
Örn Smárason skrifar