Menning

Gerir listaverk úr Snapchat

Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar
Helga hvetur áhugasama til að senda sér Snapchatskilaboð fyrir sýninguna.
Helga hvetur áhugasama til að senda sér Snapchatskilaboð fyrir sýninguna. Vísir
„Ég hef ekki fengið neitt dónalegt eða óviðeigandi enn,“ segir Helga Bergrún Sigurbjörnsdóttir, nemi í Myndlistaskólanum á Akureyri.

Helga vinur að textaverki undir handleiðslu Jónu Hlífar Halldórsdóttur, myndlistarkonu, og ætlar að nota Snapchat-skilaboð í sínu verki. „Mig langaði að skoða Snapchat-samfélagið og texta og myndir þar, hversu sýnilegt þetta er orðið, er okkur alveg sama? Mun þetta bíta okkur í rassinn á endanum?,“ segir Helga.

Á sýningunni ætlar hún að sýna Snapchat-skilaboð sem henni hafa verið send. „Ég ætla líka að vera með filmu- og polaroid myndavélar og taka myndir. Þegar ég tek þær ætla ég að skrifa niður það sem ég er að hugsa þegar ég tek þær, líkt og um Snapchat væri að ræða, og skrifa á myndirnar eftir framköllun.“ Þannig ætlar Helga að velta fyrir sér hvað við myndum gera við myndirnar, hvort þeim yrði hent eða þær geymdar.

Hún ætlar ekki að ritskoða það sem hún fær en nú þegar hefur hún fengið um 150 skilaboð. „Ég er mjög ánægð með þáttökuna, en vil fá fleiri, þannig að ég hvet alla til að „adda“ mér og senda á heggabegga,“ segir Helga. Sýningin verður í Listasafni Akureyrar 24.-29.janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.