Fótbolti

Markalaust í Monaco

Úr leik liðanna í kvöld.
Úr leik liðanna í kvöld. Vísir/Getty
Juventus hélt hreinu í kvöld gegn Monaco á útivelli og það dugði liðinu til þess að komast í undanúrslit í Meistaradeildinni.

Juve vann fyrri leik liðanna, 1-0, og fór því áfram 1-0 samanlagt.

Það hentar Monaco ekkert rosalega vel að sækja og þar sem Juventus tók þann pól í hæðina að bakka þó nokkuð var leikurinn tilþrifalítill. Markalaust í leikhléi.

Juventus hélt áfram að verjast vel í síðari hálfleik og sigldi jafnteflinu heim og fékk í verðlaun farmiðann í undanúrslit keppninnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×