Bókhaldarinn í Auschwitz dæmdur í fjögurra ára fangelsi Atli Ísleifsson skrifar 15. júlí 2015 09:01 Margir efast um hvort Gröning verði látinn sitja af sér dóminn vegna hás aldurs. Vísir/AFP
Dómstóll í þýsku borginni Lüneburg dæmdi í dag hinn 94 ára Oskar Gröning, fyrrum bókhaldara í útrýmingarbúðum nasista í Auschwitz, í fjögurra ára fangelsi. Gröning er dæmdur fyrir aðild að morðunum á um 300 þúsund mönnum. Gröning er líklegast einn sá síðasti sem leiddur verður fyrir rétt vegna aðildar sinnar að grimmdarverkunum í útrýmingarbúðum þýskra nasista í síðari heimsstyrjöldinni. Gröning baðst fyrirgefningar á aðild sinni á meðan á réttarhöldum stóð. „Í mínum huga er enginn vafi á því að ég ber siðferðislega ábyrgð.“ Hann sagðist hafa þekkt til þess á sínum tíma að fjöldi gyðinga hafi verið leiddir inn í gasklefa og teknir þar af lífi. Gröning hafði það verkefni að reikna og skrá þá peninga sem fangarnir höfðu með sér þegar þeir komu fyrst til búðanna. Verkefni hans var einnig að koma í veg fyrir að nýir fangar kæmust að þeim fjöldamorðum sem þar voru stunduð. Áætlað er að um milljón manns hafi látið lífið í útrýmingarbúðunum. Andstætt við aðra þá sem störfuðu í Auschwitz hefur Gröning talað opinskátt um það sem átti sér stað í búðunum. Hefur hann ritað sjálfsævisögu, látið taka við sig viðtöl og tekið þátt í gerð fjölda heimildarmynda.Í frétt BBC kemur fram að margir efist um hvort Gröning verði látinn sitja af sér dóminn vegna hás aldurs.
Tengdar fréttir Bókhaldari nasista í Auschwitz biðst fyrirgefningar Réttarhöld gegn hinum 93 ára Oskar Gröning hófust í morgun. 21. apríl 2015 10:51 Mest lesið Bifreið í ljósum logum við Stuðlaháls Innlent Nú beinast öll spjót að bönkunum Innlent Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Erlent Mikil umferð vegna áreksturs í Kópavogi Innlent Höfum ekki efni á svona stórkarlalegri Ölfusárbrú Innlent Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Erlent Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Erlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent Fleiri fréttir Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Sjá meira
Bókhaldari nasista í Auschwitz biðst fyrirgefningar Réttarhöld gegn hinum 93 ára Oskar Gröning hófust í morgun. 21. apríl 2015 10:51