Lífið

Ásgeir Trausti í Grey's Anatomy

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ásgeir Trausti.
Ásgeir Trausti. vÍSIR/JÓNATAN GRÉTARSSON
Lag í flutningi Ásgeirs Trausta tónlistarmanns, Was There Nothing, var notað í nýjasta þætti bandarísku læknaþáttanna Grey’s Anatomy.

Lagið er ensk útgáfa lagsins Hljóða nótt af fyrstu plötu kappans. Ásgeir hefur undanfarið spilað víða um heim en hann kemur fram á tónleikum í Hörpu þann 16. júní næstkomandi.

Nýjasti þáttur Grey’s Anatomy verður á Stöð 2 á miðvikudag og verður þá hægt að hlýða á undurfagra rödd Ásgeirs.

Umrætt lag má heyra hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×