Erlent

Veikburða vopnahlé í Úkraínu

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Liðsmenn Azov-sveitanna, sem barist hafa við uppreisnarmenn í austanverðri Úkraínu, æfa sig í Kænugarði.
Liðsmenn Azov-sveitanna, sem barist hafa við uppreisnarmenn í austanverðri Úkraínu, æfa sig í Kænugarði. Nordicphotos/AFP
Undanfarnar vikur hafa tugir manna fallið í átökum í austanverðri Úkraínu. Óttast er að vopnahléssamkomulagið frá í febrúar geti verið í andarslitrunum.

Gagnkvæmar ásakanir hafa verið um tíð vopnahlésbrot víða á vopnahléslínunni, sem afmarkar svæði uppreisnarmanna í Donbass-héraði.

Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, sem fylgist með framkvæmd vopnahléssamkomulagsins, staðfestir að vopnahléið sé rofið oft á degi hverjum og virðast eftirlitsmenn standa ráðalausir gagnvart því.

Þá segir stofnunin að uppreisnarmenn, sem Rússar hafa stutt, hafi meinað eftirlitsmönnum aðgang að svæðum, þar sem geyma átti þungavopn sem væru ónotuð meðan vopnahléið væri í gildi. Ekki sé því hægt að ganga úr skugga um að skriðdrekar og þungavopn hafi ekki verið flutt að átakalínunni.

Úkraínski stjórnarherinn og vopnaðir hópar, sem barist hafa með honum, hafa sömuleiðis verið sagðir búa sig undir frekari átök með flutningi herliðs og hergagna að vopnahléslínunni.

Á blaðamannafundi á þriðjudag sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti, þá staddur á Krímskaga, margt benda til þess að vopnahléssamkomulagið væri að fara út um þúfur, en tók fram að sökin væri hjá stjórnar­hernum: „Því miður erum við að sjá það nú, að átök eru að harðna, og sökin liggur ekki hjá sjálfsvarnarsveitunum í Donbass heldur hinum.“

Pútín vildi hins vegar ekkert ræða það hvort Úkraína gæti þegar fram líða stundir hugsanlega endurheimt Krímskaga, sem Rússar innlimuðu fyrr á þessu ári:

„Nei, ég vil ekki svara neinu um þetta, vegna þess að framtíð Krímskaga hefur verið ákveðin af íbúunum þar. Þeir greiddu atkvæði með því að endursameinast Rússlandi. Punktur.“

Atburðarásin:22. febrúar 2014

Viktor Janúkóvítsj forseti hrekst úr landi í kjölfar harðvítugra mótmæla.

6. apríl 2014

Stríðsátök hefjast í Donbass-héraði í austanverðri Úkraínu.

18. maí 2014

Rússar innlima Krímskaga eftir þriggja vikna átök.

25. maí 2014

Petró Porosjenkó kosinn forseti.

5. september 2014

Vopnahléssamkomulag undirritað í Minsk í Hvíta-Rússlandi, en fer fljótlega út um þúfur.

11. febrúar 2015

Annað vopnahléssamkomulag undirritað í Minsk af leiðtogum Rússlands, Úkraínu, Þýskalands og Frakklands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×