Lífið

Stórtónleikar í kortunum: Rihanna sögð á leið til landsins

Kjartan Atli Kjartansson og Gunnar Leó Pálsson skrifa
Um sextán þúsund manns sáu Justin Timberlake með berum augum í Kórnum síðastliðið sumar. Mikil tilhlökkun er í þjóðinni fyrir öðrum stórtónleikum.
Um sextán þúsund manns sáu Justin Timberlake með berum augum í Kórnum síðastliðið sumar. Mikil tilhlökkun er í þjóðinni fyrir öðrum stórtónleikum. vísir/Andri Marinó/Getty
Búið er að taka nokkrar dagsetningar frá fyrir mögulega stórviðburði í Kórnum í sumar, að sögn Birgis Bjarnasonar, framkvæmdastjóra HK sem sér  rekstur Kórsins. „Ég get ekki fullyrt neitt en ég hef heyrt að það sé einhver á svipuðu „kalíberi“ og tónleikarnir síðasta sumar,“ segir Birgir og bætir við: „Við höfum verið beðin um að taka frá dagsetningar í júní og júlí. Það eru einhverjar hugmyndir á lofti en það hefur ekkert verið staðfest.“

Heimildir Fréttablaðsins og Vísis herma að verið sé að skipuleggja tónleika þar sem þekkt erlend stjarna muni koma fram. Óvíst er hvaða stjarna mun troða upp í Kórnum en hafa mörg nöfn verið nefnd til sögunnar í þeim efnum. Sterkur orðrómur er nú á kreiki á meðal fólks innan tónleikabransans að viðræður séu í gangi um að fá stórstjörnuna Rihanna til landsins.

Sjá einnig:Rihanna sú vinsælasta á Facebook

Rihanna, sem er frá Barbados, er skærasta poppstjarna heims og hefur selt yfir 30 milljónir eintaka af plötum sínum. Hún hefur nýlokið tónleikaferð um Bandaríkin, ásamt rapparanum Eminem. Ferðalag þeirra var skipulagt af fyrirtækinu Live Nation, sem skipulagði tónleika bandaríska söngvarans Justins Timberlake hér á landi í samstarfi við Senu.

Rihanna er vinsæl um allan heim. Breiðskífur hennar hafa selst í 30 milljónum eintaka og 120 milljón eintök af smáskífum hennar.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins voru bæjaryfirvöld í Kópavogi mjög ánægð með framkvæmd tónleika Timberlakes í Kórnum í ágúst í fyrra. Lokað var fyrir bílaumferð í stórum hluta Kórahverfisins en í staðinn voru farþegar ferjaðir að Kórnum í strætisvögnum.

Sjá einnig:Kórinn tæmdist á korteri

Góður rómur var gerður að allri umgjörð í Kórnum og var sá orðrómur á kreiki strax síðasta haust að litið hefði verið á tónleika Timberlakes sem próf; hvort hægt yrði endurtekið að halda tónleika sem væru af svipaðri stærðargráðu í Kórnum í framtíðinni. En heimildir Fréttablaðsins herma þó að HK-ingar, sem fara með rekstur Kórsins, ætli að hækka leigu- og þjónustuverð í Kórnum verði aðrir tónleikar haldnir þar. 

Við vinnslu fréttarinnar var einnig rætt við íbúa í Kórahverfinu sem voru ánægðir með fyrirkomulag tónleikanna í fyrra og sögðu lítið ónæði hafa skapast þegar tæplega tuttugu þúsund manns söfnuðust saman í Kórnum að hlusta á Justin Timberlake.

Hér að neðan má sjá þegar Rihanna tekur lagið á sviði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×