Lífið

Hannar barnafatalínu

Adda Soffia Ingvarsdottir skrifar
Eva Mendes
Eva Mendes Vísir/getty
Leikkonan Eva Mendes ætlar að hanna sína eigin barnafatalínu.

Nú þegar hefur hún gert eina kvenfatalínu fyrir New York & Co, en nú ætlar hún að bæta barnafatnaði við þá línu. Línan hefur fengið nafnið Mini Eva og er fyrir stúlkur á aldrinum sex mánaða til fjögurra ára.

Er línan væntanleg í verslanir í maí og að auki mun hún kynna viðbót við kvenfatalínuna, svo sem skó, töskur og brúðarklæðnað.

Mendes á dótturina Esmeröldu, sem er sex mánaða, með leikaranum Ryan Gosling.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×