Lífið

Veist að Adam Levine fyrir utan myndver Jimmy Kimmel

Birgir Olgeirsson skrifar
Gusan reyndist heldur vegleg sem fór yfir söngvarann Adam Levine.
Gusan reyndist heldur vegleg sem fór yfir söngvarann Adam Levine. Vísir/YouTube
Söngvari sveitarinnar Maroon 5, Adam Levine, fékk flórsykur yfir sig þegar hann gaf eiginhandaráritanir fyrir utan myndverið þar sem spjallþáttur JimmyKimmel er tekinn upp.

Levine hafði gefið sér tíma til að sinna aðdáendum sínum eftir að hafa lokið upptökum hjá Kimmel en varð frá að hverfa eftir að karlmaður á fertugsaldri kastaði flórsykri yfir söngvarann.

Maðurinn var yfirbugaður af öryggisvörðum en ekki hefur verið greint frá nafni hans í fjölmiðlum. TheHollywoodReporter segir hann eiga nokkur brot að baki en hann hefur til að mynda kastaði grjóti í leikarann DwayneTheRockJohnsons. Er talið að flórsykurtilræði mannsins gagnvart Levine tengist því laginu Sugar sem Maroon 5 flytur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×