Lífið

Kínverskur maður reynir að haga lífi sínu eftir Friends þáttunum

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Kallaðu hann bara Gunther.
Kallaðu hann bara Gunther. mynd/youtube
Hinn kínverski Du Xin er líklega mesti Friends aðdáandi í heimi. Ekki nóg með að hann eigi og reki kaffihús í Peking sem er nákvæm eftirlíking af Central Perk heldur kýs hann einnig að vinir sínir kalli sig Gunther.

Enskt nafn sonar hans er Joey og þrátt fyrir ungan aldur á sá stutti auðvelt með að henda í lauflétt „How you doing?“ Á daginn vinnur hann á kaffihúsinu sínu og er hann kemur heim á kvöldin tekur á móti honum íbúð sem svipar mjög til íbúðar Joey og Chandler.

Innslag vefsíðunnar i-D um Du Xin er hægt að sjá með því að horfa á myndbandið hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×