Lífið

Tíkall í krukkuna hvern dag

Guðrún Ansnes skrifar
Eva með gripinn góða sem hún safnaði sér fyrir, tíkall fyrir tíkall. fréttablaðið
Eva með gripinn góða sem hún safnaði sér fyrir, tíkall fyrir tíkall. fréttablaðið
„Ég hef alltaf átt erfitt með raðgreiðslur og Visa-reikninga, en ég hef ekki getað notað vörurnar fyrr en þær eru greiddar að fullu,“ segir Eva Hrund Kjerúlf, sem á dögunum lét gamlan draum rætast er hún fjárfesti í sinni fyrstu hrærivél, eftir fimmtán ára sleitulausa söfnun.

Eva hefur safnað fyrir hrærivélinni síðan árið 2000, eða síðan hún eignaðist eldri dóttur sína. „Hugmyndin kom þegar ég sat eina andvökunóttina með hana og horfði á bíómynd á Stöð 2 þar sem sögupersónan safnaði miklum peningum með litlum fjárhæðum. Mér datt í hug að þetta gæti ég líka gert og hóf þegar í stað að setja tíu krónur í tíkallakrukkuna mína,“ útskýrir hún.

Eva segir ekki hafa verið erfitt að standa við að setja í krukkuna dag hvern: „Ég hélt bókhald, og ef ég gleymdi að setja í krukkuna, sá ég það svart á hvítu og bætti upp.“

Eva segist hafa verið gríðarlega stolt þegar hún fór loks og keypti sér Kitchenaid-hrærivélina sem hana hafði alltaf langað í. „Það var virkilega gaman, og ef til vill skemmtilegra en ella,“ bendir Eva á og segir fólk í dag of upptekið af að eiga flottari hluti en næsti maður.

„Það er ekkert mál að safna fyrir hlutunum, maður verður bara að setja sér markmið. Ég veit reyndar ekki um neinn sem gerir þetta í dag, það er svo auðvelt að draga upp Visa-kortið."



Eva segir þetta aldrei hafa staðið tæpt hjá henni og hún hafi alls ekki freistast til að seilast ofan í tíkallakrukkuna og spreða í eitthvað annað. En ætli hafi þá ekki verið erfitt að láta sjóðinn fara? „Nei, alls ekki. Það var bara virkilega skemmtilegt. Ég er þegar byrjuð að safna aftur og nú ætla ég að setja tuttugu, eða jafnvel þrjátíu krónur á dag í söfnunina, ég hef nefnilega aldrei átt nýtt sófasett,“ segir þessi samviskusami safnari að lokum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×