Formúla 1

Nico Rosberg á ráspól í Japan

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg náði ráspól í Japan í dag.
Nico Rosberg náði ráspól í Japan í dag. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól í Japan, liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar og Valtteri Bottas á Williams var þriðji.

Mercedes liðið var aftur á toppnum. Martraðirnar virðast hafa verið bundnar við Sinpapúr brautina og mjúku dekkin sem þar voru í boði. Í Japan eru hörð og meðal hörð dekk notuð.

Ökumaður á ráspól hefur unnið keppnina í 12 tilfellum af síðustu 26. Það er nóg af stöðum á Suzuka til að taka fram úr.

Gulum flöggum var veifað undir lok fyrstu lotu vegna Toro Rosso bíls Max Verstappen sem nam staðar á brautinni. Hann missti afl og gat ekkert gert til að reyna að lífga bílinn við.

Manor og Sauber liðin duttu út í fyrstu lotu ásamt Jenson Button á McLaren. „Við verðum að vera með öll grunnatriði á hreinu, við höfum ekki efni á öðru,“ sagði Button á leiðinni inn á þjónustusvæðið. Hann hafði ekki fengið upplýsingar um hvaða stillingu hann átti að setja vélina á.

Daniil Kvyat slapp ómeiddur úr dramatísku atviki undir lok þriðju lotu.Vísir/Getty
Önnur lota var viðburðalítil. Fernando Alonso á McLaren, Pastor Maldonado á Lotus, Carlos Sainz á Toro Rosso og Nico Hulkenberg á Force India, duttu út í annarri lotu. Verstappen tók ekki þátt enda komst bíllinn hans ekki undir eigin afli á þjónustusvæðið í fyrstu lotu. HUlkenberg færist aftur um þrjú sæti á ráslínu í refsiskyni fyrir árekstur við Felipe Massa síðustu helgi. Hulkenberg mun því ræsa 14. á morgun.

Baráttan um ráspól í þriðju lotu var engra annarra en Mercedes manna. Rosberg hafði verið fljótastur í annarri lotu en Hamilton í þeirri fyrstu. Vandræðin í Singapúr voru augljóslega skilin eftir á flugvellinum þar.

Daniil Kvyat lenti í ógnvænlegu atviki þegar tæpar tvær mínútur voru eftir af lotunni. Hann fór aðeins út á grasið og missti algjörlega stjórn á bílnum.

Afleiðingar þess voru að fyrri tilraun í þriðju lotu réði úrslitum um ráspól. Rosberg var 0,076 á undan Hamilton sem gerði smá mistök í sinni fyrstu tilraun.

Hér fyrir neðan má finna öll helstu úrslit helgarinnar, þau uppfærast eftir því sem líður á.


Tengdar fréttir

Lok, lok og læs hjá Lotus

Lotus liðið kom að lokuðum dyrum á gestamóttöku sinni við Suzuka brautina í Japan. Búnaður liðsins kom einnig á eftir búnaði annarra liða. Japanski kappaksturinn fer fram um helgina.

Romain Grosjean til Haas F1

Romain Grosjean verður kynntur sem annar ökumanna Haas F1 liðsins á þriðjudaginn. Ákvörðun franska ökumannsins kom liði hans, Lotus á óvart, sagði Federico Gastaldi vara liðsstjóri Lotus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×