Lífið

Stórbrotnar íbúðir í Skipholtinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Íbúðirnar eru sérstaklega fallegar.
Íbúðirnar eru sérstaklega fallegar. vísir
Í Skipholti hefur þriggja hæða hús fengið algjöra andlitslyftingu og eru stórglæsilegar íbúðir í húsinu. Þær eru sérstaklega fallegar og tvær af þeim eru endurgerðar í New York Style. Húsið var byggt árið 1985.

Á 1. og 2. hæð eru tvær þriggja herbergja og rúmlega 160 fermetrar íbúðir. Innanhúshönnun var í höndum Concept hönnuðarins Leifs Weldings og innanhúsarkitektsins Berglindar Berndsen. Lýsing og hönnun ehf. sáu um lýsingarhönnun. Allar innréttingar og hurðar eru sérsmíðaðar af Fagus úr reyktri eik og er því um einstaklega glæsilegar eignir að ræða.

Fasteignasalan Lind er með tvær af þessum íbúðum til sölu. Þær eru báðar með tvö góð svefnherbergi með fataskápum. Glæsilegt  flísalagt baðherbergi með steyptri handlaug og innbyggðum blöndunartækjum. Þvottahús innan íbúðar ásamt geymslu.

Eldhús mjög glæsilegt með  stórri eyju og miklu skápaplássi. Stofa og borðstofa rúmgóðar og bjartar. Múrsteinsklæddur veggur í stofu ásamt skenku og áfastri hillueiningu. Múrsteinn í stofu, flísar á baðherbergi og þvottahúsi eru frá Agli Árnasyni. Borðplata í eldhúseyju og baðherbergi eru steyptar frá Loftorku. Miele ofn og spanhelluborð er í eldhús frá Eirvík. Hansa Grohe innbyggð blöndunartæki frá Ísleifi Jónssyni. Fullkomin hita og ljósastýring "Instabuz" kerfi.

Stigagangur er nýmálaður og teppalagður. Að utan er nýlega búið að helluleggja stéttar og setja hita, tréverk málað, þak málað, hús sílaborið og ný hjólageymsla.

Þriðja íbúðin er algjörlega endurnýjuð og vel skipulagða 175.6 fm íbúð á tveimur hæðum.

Tvö rúmgóð svefnherbergi bæði með fataskápum. Stofa, borðstofa eitt opið bjart og skemmtilegt rými og er útgengi á skjólgóðar ca. 15 fm svalir í suð-vestur. Sjónvarpsstofa er afstúkað rými frá stofu/borðstofu.

Eldhús er rúmgott með aukinni lofthæð, snyrtileg hvít eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, eldunareyja með helluborði í framhaldi af eldhúsi, eyju er hægt að nýta sem eldhúsborð.

Gengið upp hringstiga úr stofu uppá efri hæð þar sem komið er í hol sem hægt er að nýta sem skrifstofu/sjónvarpsstofu.

Þriðja íbúðin er á þriðju hæðinni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×