Lífið

Uppselt á Eddie Izzard á fimm mínútum

Samúel Karl Ólason skrifar
Breski grínistinn Eddie Izzard.
Breski grínistinn Eddie Izzard. Vísir/EPA
Miðasala á uppistand grínistans Eddie Izzard hófst klukkan tíu í morgun á midi.is. Allir fáanlegir miðar í Eldborgar salinn í Hörpu seldust á fimm mínútum og er uppselt á sýninguna, sem fer fram á laugardaginn.

Í tilkynningu frá Midi.is segir að aukasýning sé ekki möguleg. Tilkynnt var um komu grínistans hingað til lands með einungis viku fyrirvara.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×