Lífið

Segir stjörnumerkin óbreytt

Samúel Karl Ólason skrifar
„Staðan er þessi: Stjörnumerkin eru óbreytt. Þau byggja á árstíðum.“ Þetta segir Gunnlaugur Guðmundsson, stjörnuspekingur, en hann var gestur í Reykjavík síðdegis í gær. Hann segir frétt BBC frá því í fyrradag um breytingu stjörnumerkja vera ranga. Talið er að 86 prósent fólks telji sig vera í öðru stjörnumerki en það er í með réttu.

„Þetta hefur ekkert breyst. Stjörnumerkin eru þau sömu. Þetta hefur alltaf, frá upphafi vega í mörg þúsund ár byggt á árstíðunum. Það er að segja að vorið skiptist í þrjú merki, sumarið í þrjú merki, haustið í þrjú merki og veturinn í þrjú merki.“

Gunnlaugur segist hafa fengið fyrirspurnir og að fólk væri óttaslegið. Meðal fyrirspurna sem hann hefur fengið eru: „Er ég ekki lengur? og Er ég maður?“ „Ég held að það séu einhverjar nöðrur þarna úti, sem eru að reyna að troða sínum naðurvaldi yfir á mennina.“

„Það breytir engu þó einhver sólkerfi eða steinar á himni í bakgrunni í einhverjum öðrum sólkerfum færist til séð frá jörðinni. Árstíðarnar eru ennþá þær sömu.“

Gunnlaugur segist ekki hafa kynnt sér Naðurvalda, því þeir hafi ekkert með stjörnuspeki að gera. Hann segir þetta vera fastastjörnur í milljarða ljósára fjarlægð frá jörðinni og hafi ekkert með okkur að gera.

„Ég hef reynt að svara þessu þannig, með því að gagnrýna Mercedes Benz fyrir það að gufuvélarnar í þeim séu ekki nógu góðar. Eitthvað svona fáránlegt.“

Hann segir að þetta nýja fyrirkomulag stingi upp kollinum á hverju ári.

„Ég veit ekki alveg hvað. Ef ég væri ekki svona fallega innrættur, myndi ég halda að einhverju fólki væri illa við stjörnuspeki. Ég get ekki ímyndað mér það.“ Hann sagði þó að þetta væru einhvers konar árásir.“

Allt viðtalið við Gunnlaug má hlusta á hér að ofan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×