Lífið

Davíð Oddsson: Starf jólasveins það besta sem ég hef gegnt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Davíð Oddsson
Davíð Oddsson Vísir/Anton Brink
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, segist alla tíð hafa borgað skatt af tekjum sínum ef frá er talið tímabilið sem hann starfaði sem jólasveinn. Þá upplýsir hann í stuttu viðtali við vefsjónvarpsþáttinn Áttuna að Gordon Brown sé meiri skúrkur en bæði Svarthöfði og Voldemort.

Davíð var spurður nokkurra skrýtinna spurninga í viðtalinu og meðal annars út í feril sinn og þau störf sem hann hefur gengið í.

„Ég var jólasveinn um tíma og það var eiginlega besta jobb sem ég hef haft, af því við borguðum enga skatta. Pétur Pétursson þulur sem var umboðsmaður okkar sagði okkur frá því að Leppalúði hafði samið um það við ríkisskattstjóra um að þetta væri skattfrjálst.“

Bætti Davíð við að síðan þá hefði hann greitt skatt af tekjum sínum.

Gordon Brown var forsætisráðherra þegar hryðjuverkalögin voru sett.Vísir/Getty
Gordon Brown mesti skúrkurinn

Spyrillinn, Ragnar Jónsson, bað í kjölfarið Davíð um að gera upp á milli fjögurra aðila. Voldemort, Sauron, Darth Vader og Gordon Brown, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands.

„Af þessum sem þú nefnir finnst mér mest til um frú Thatcher og Winston Churchill,“ sagði Davíð. En hver þeirra fjögurra er mesti skúrkurinn?

„Gordon var alltaf í hnút. Þess vegna er nú þetta fræga nafn, Gordonshnúturinn. Án þess að ég vilji gera upp á milli og særa hina þá hafi hann verið mesti skúrkurinn.“

Fimmta og síðasta spurningin sneri svo að því hvort Davíð þætti betra, Honey Nut Cheerios eða venjulegt?

„Ég hef aldrei verið spurður að þessu áður. Spurning af þessu tagi kemur dálítið aftan að manni,“ sagði Davíð í gríni og lét ekki slá sig út af laginu.

„Ég var að vona að þú spyrðir um Kornflex. Ég borðaði yfirleitt Kornflex áður en ég byrjaði að borða hafragraut,“ sagði Davíð og upplýsti að hann borðaði ekki hunang. Honum væri illa við vespur.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×