Viðskipti erlent

Volkswagen gæti ógnað allri Evrópu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Martin Winterkorn, fráfarandi forstjóri VW, fær fjóra milljarða í lífeyrisgreiðslur frá fyrirtækinu og er því ekki á flæðiskeri staddur.
Martin Winterkorn, fráfarandi forstjóri VW, fær fjóra milljarða í lífeyrisgreiðslur frá fyrirtækinu og er því ekki á flæðiskeri staddur. NordicPhotos/AFP
Hneykslið sem skekur Volkswagen-verksmiðjurnar gæti orðið mesta aðsteðjandi hættan að þýska hagkerfinu.

„Allt í einu er Volkswagen orðið meiri ógn við þýskt efnahagslíf en vandinn í Grikklandi,“ segir Carstern Brzeski, aðalhagfræðingur greiningarfyrirtækisins ING.

Hneyksli VW má rekja til þess að hugbúnaður er settur í bílinn sem skynjar hvenær verið er að skoða bílinn. Við skoðun setur hugbúnaðurinn í gang síur sem draga úr útblæstri. Eftir skoðun, og á meðan bíllinn er í venjulegum akstri, sér hugbúnaðurinn til þess að slökkt er á síunni. Ástæðan er sú að búnaðurinn sem dregur úr útblæstrinum eykur eldsneytisþörfina og gerir bílinn hæg­skreiðari. Hlutabréf í VW féllu um rúm 30 prósent fyrst eftir að hneykslið varð opinbert, þó það hafi jafnað sig að einhverju leyti.

Lánshæfismatsfyrirtækið Standard og Poor's hefur sett VW-verksmiðjurnar á athugunarlista með neikvæðum horfum. Ástæðan er sú að fyrirtækið þarf að leggja til hliðar jafnvirði 930 milljarða króna til að fást við vandann. Óttast er að vandi Volkswagen muni smitast út í þýskt efnahagslíf og jafnvel verða til þess að veikja evruna, einkum ef aðrir evrópskir bílaframleiðendur verða uppvísir að sömu svikum.

Og hneykslið skapar óró víðar. Í Japan féllu hlutabréf bílaverksmiðjanna nokkuð. Mazda féll mest eða um 6,8 prósent, Mitsubishi féll um átta prósent og Honda um þrjú. Nissan lækkaði svo um 2,5 prósent. Hlutabréf í fyrirtækjum sem framleiða íhluti í bíla féllu einnig. 


Tengdar fréttir

Vísbendingar um frekari blekkingar

Martin Winterkorn, forstjóri Volkswagen-verksmiðjanna, sagði upp störfum í gær. Starfsmaður Umhverfisstofnunar segist hafa upplýsingar um að amerískir dísilvélaframleiðendur hafi notað sambærilegan hugbúnað og Volkswagen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×