Lífið

Stjörnum prýtt partí dansandi mannsins

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Það stefnir allt í heljarinnar fjör hjá dansandi manninum.
Það stefnir allt í heljarinnar fjör hjá dansandi manninum. vísir/getty
Fyrir helgi sögðum við frá dansandi manninum sem netsóðar á vefnum 4Chan voru að gera grín að. Í kjölfarið óskaði hópur ungra kvenna átak til að sýna samstöðu með manninum undir kassamerkinu #FindDancingMan.

Eftir talsverða leit fannst út hver dansarinn var en hann heitir Sean og er frá London. Hefur fólk víðsvegar að hafist handa við að undirbúa partí honum til heiðurs.

Um 36.000 dollarar hafa safnast (það eru tæpar fimm milljónir króna) og frá tæplega tvöþúsund manns sem ætla sér að dansa með manninum.

Fjöldi frægir listamenn hafa boðið fram þjónustu sína til að gera teitið sem eftirminnilegast en þeirra á meðal eru Pharrell Williams, Ellie Goulding og Moby.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×