Lífið

Anne Hathaway jarðaði „mæmkeppni“ með Miley Cyrus lagi

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Anne Hathaway með sleggjuna
Anne Hathaway með sleggjuna
Leikkonurnar Anne Hathaway og Emily Blunt áttust við í einhverri epískustu mæmkeppni sem sögur fara af í gærkvöldi. Keppnin fór fram á sjónvarpsstöðinni Spike og ólíklegt, en þó ekki ómögulegt, að fólk muni koma til með að sjá betri keppni af þessu tagi á næstunni.

Anne reið á vaðið með því að leika eftir lagið Love eftir Mary J. Blige við miklar og góðar undirtektir. Emily svaraði fyrir sig með laginu No Diggity eftir Blackstreet af mikilli snilld.



Í annari umferð var Emily á undan á sviðið og lék eftir Piece of my Heart með Janis Joplin. Flestir héldu að Hathaway gæti ekki toppað hana en hún fór langleiðina með það, hið minnsta, með Wreckingball, lagi Miley Cyrus.



Nú er bara spurningin, hvor náði laginu betur, Hathaway eða Hansa í gervi Vigdísar Hauksdóttur í Áramótaskaupinu 2013?








Fleiri fréttir

Sjá meira


×