Lífið

Ruglaði í liðsfélaga í heilt kvöld: Ákvað að fara alla leið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arnar Már fer á kostum í myndbandinu.
Arnar Már fer á kostum í myndbandinu. myndir/aðsendar
Arnar Már Eyfells, þjálfari Morfísliðs Fjölbrautaskóla Suðurnesja, fer á kostum í myndbandi sem hann útbjó með samskiptaforritinu Snapchat.

„Ég er að þjálfa MORFÍs lið FS og var búinn að vera rugla í einum liðsmanninum hjá mér í heilt kvöld. Svo tókum við smá rúnt í 10/11 og þá ákvað ég bara að fara alla leið og bjó til smá Snapchat sögu honum til mikillar gremju,“ segir Arnar.

Í myndbandinu má sjá hvernig Arnar nær að tengja vörur innan úr versluninni við hann Smára, og eins og sést þá fer athæfið ekkert sérstaklega vel í kauða. Sjón er sögu ríkari og má sjá myndbandið hér að neðan.

Arnar, Smári og MORFÍs lið FS eru komin í undanúrslit í ræðukeppninni að þessu sinni og mætir liðið Menntaskólanum við Sund á mánudagskvöldið.

"Hey Smári." #MORFÍs

Posted by Arnar Már Eyfells on 10. apríl 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×