Lífið

Kveða kynþáttafordóma í kútinn með korti

Guðrún Ansnes skrifar
Fríða Rós Valdimarsdóttir með kortin sem landsmenn munu fá inn um lúguna áður en vikunni lýkur.
Fríða Rós Valdimarsdóttir með kortin sem landsmenn munu fá inn um lúguna áður en vikunni lýkur. Vísir/Pjetur
Í vikunni verða send út eitt þúsund póstkort um land allt. Skilaboð kortanna eru skrifuð af ungu fólki og munu berast inn um lúgur fólks um allt land.

Verkefnið gengur undir nafninu Hönd í hönd og er liður í Evrópuviku gegn kynþáttafordómum sem Mannréttindaskrifstofa Íslands stendur fyrir.

„Þessi skemmtilegu póstkort eru send handahófskennt vítt og breitt um landið á næstunni og er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um kynþáttafordóma,“ segir Fríða Rós Valdimarsdóttir hjá Mannréttindaskrifstofunni. Evrópuvikan er fastur liður í starfi stofunnar og fer nú af stað í sjötta skiptið.

„Markmið okkar er að kveða niður þá kynþáttafordóma sem fyrirfinnst í Evrópu í dag. Við viljum jafnframt kalla á meira umburðarlyndi. Samfélagið er að breytast í fjölmenningarsamfélag og við eigum að vera þakklát fyrir það,“ segir Fríða Rós.

Fríða Rós Valdimarsdóttir
Vikan mun einkennast af vitundarvakningunni, en í dag munu tuttugu og sex grunnskólar leggja sitt á vogarskálarnar með því að haldast hönd í hönd umhverfis skólann sinn.

„Allir eru velkomnir í þann gjörning og vit hvetjum fólk til að mæta og vera með þar,"segir Fríða Rós. 

Fríða Rós segir umræðuna mikilvæga, en Mannréttindaskrifstofa fái mikið af málum inn á borð til sín er varða kynþáttafordóma hér á landi.

„Okkur sýnist versta staðan vera úti á vinnumarkaði, þar sem oft er litið fram hjá fólki með erlend nöfn í stórum stíl, burtséð frá menntun og öðru slíku.“

„Við hvetjum alla til að vera með. Verkefninu verður svo slaufað með málþingi í Ráðhúsi Reykjavíkur á laugardag,“ bætir Fríða Rós við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×