Lífið

Myndbandsstjörnuspár Siggu Kling: „Eins og ég sé komin inn í stofu til fólks“

Atli Ísleifsson skrifar
Sigríður Klingenberg, eða Sigga Kling, mun frá og með morgundeginum spá mánaðarlega fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins. Sigga mætti í Ísland í dag fyrr í kvöld þar sem hún sagði frá spánum sem verða í myndbands- og textaformi.

„Ég tala spána. Ég horfi í augun á þér og það er næstum eins og ég sé komin inn í stofu,“ segir Sigga, sem kveðst vilja tengjast fólki, senda gleði og að öllum líði vel. „Ég vil að fólk taki það jákvæða úr spánni og pínulítið líti á það neikvæða. Það á kannski bara að vera varkárt með eitthvað.“

Hún leggur áherslu á að fólk eigi að gera það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið.

Stjörnuspár Siggu hafa lengi vel verið feykivinsælar. Þær einkennast af gleði, jákvæðni, krafti og orku en það eru skilaboðin sem hún vill senda út til samfélagsins.

Sjá má viðtalið við Siggu í spilaranum að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×