Viðskipti innlent

Útgáfa hagtalna hjá Hagstofunni tefst vegna verkfalla

ingvar haraldsson skrifar
Útgáfa á niðurstöðum landsframleiðslu tefst hjá Hagstofunni.
Útgáfa á niðurstöðum landsframleiðslu tefst hjá Hagstofunni. vísir/vilhelm
Vegna verkfalla starfsmanna hjá Fjársýslu ríkisins mun Hagstofa Íslands ekki geta gefið út niðurstöður sínar um landsframleiðslu á 1. ársfjórðungi ársins 2015 sem koma átti út á morgun.

Verkfall starfsmanna hjá Fjársýslu ríkisins hefur haft í för með sér að tafir hafa orðið á niðurstöðum um fjárhag ríkissjóðs sem hefur í för með sér að Hagstofan getur ekki lokið útreikningum á landsframleiðslu.

Útgáfunni hefur verið frestað til þriðjudagsins 9. júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×