Lífið

Hlaupa fyrir UNICEF

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gunnar Hanson fer á kostum.
Gunnar Hanson fer á kostum.
Atli Fannar, Berglind Festival, Sunna Ben, Magga Maack, Gunni Hans og Lóa í FM Belfast taka þátt í litagleði með UNICEF á Íslandi í tengslum við The Color Run by Alvogen sem fer fram í Reykjavík á laugardag.

Markmiðið er að vekja athygli á því að mjög mikill árangur hefur náðst við að bæta líf barna um allan heim. Barnadauði hefur stórminnkað. Aldrei hafa fleiri haft aðgang að hreinu vatni og aldrei hafa fleiri börn farið í skóla. Barátta UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á virkan þátt í þessu.

UNICEF á Íslandi biður fólk um að gefa hvert öðru fimmu fyrir árangrinum sem náðst hefur og senda sms-ið FIMMA í númerið 1900 (500 kr) til að halda baráttu UNICEF áfram. Hluti af þátttökugjöldum í hlaupinu og litagleðinni næstkomandi laugardag renna til baráttu UNICEF fyrir öll börn.

Öll börn eiga rétt á vernd, næringu, heilsugæslu, menntun, hamingju og gleði.

Atli Fannar, þú ert með eitthvað framan í þér.

Ótrúlegt myndband af þremur kettlingum og pandabirni sem taka höndum saman og komast loksins aftur heim. Atli Fannar Bjarkason, höfrungur og dansandi gamall maður hjálpuðu til. Þið trúið ekki hvað gerist næst.

Posted by UNICEF á Íslandi on 3. júní 2015
Sunna segir...

Mikilvæg skilaboð frá Sunnu Ben, með óvæntum endi #fimma fyrir Sunnu og #öllbörn

Posted by UNICEF á Íslandi on 3. júní 2015
Berglind trufluð í miðri setningu og brjálast

Berglind trufluð í miðri setningu og brjálast. Ókei. 'Brjálast“ kannski ekki. Samt fyndið :)Við hlökkum til að sjá ykkur í The Color Run Iceland á laugardaginn og hvetjum alla til að senda sms-ið FIMMA í númerið 1900 (500 kr.) og taka þátt í baráttu UNICEF fyrir #öllbörn

Posted by UNICEF á Íslandi on 4. júní 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×