Lífið

Frysti leikarana

Jackson ber ekki kala til Tarantinos, sem veit upp á hár hvað hann er að gera.
Jackson ber ekki kala til Tarantinos, sem veit upp á hár hvað hann er að gera. fréttablaðið/nordicphotos
Íslandselskandinn Quentin Tarantino fer sjaldan troðnar slóðir og við tökur á nýjustu mynd sinni tekur hann sig til og frystir leikarana, bókstaflega.

Samuel L. Jackson fer með eitt aðalhlutverkanna í myndinni, The Hateful Eight, og lét hafa eftir sér nýlega að sérstakur frystiklefi hafi verið gerður þar sem atriði í myndinni voru tekin upp. Ku þar hafa verið þrjátíu gráða frost og ástandið svoleiðis að leikararnir hafi fengið að þjást úr kulda alla daga.

Sagði Jackson að þetta sérstaka útspil leikstjórans hafi samt gert að verkum að myndin sé töfrum þrungin, en andrúmsloftið sem skapaðist í tökunum hafi ekki verið neinu líkt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×