Menning

Uppáhaldstónlistin verður á efnisskránni

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Graduale Nobili fagnar sigursælum fimmtán ára ferli með tónleikum á morgun.
Graduale Nobili fagnar sigursælum fimmtán ára ferli með tónleikum á morgun. Mynd/Úr einkasafni
„Þær eru búnar að vinna þvílík afrek, þessar stúlkur,“ segir Jón Stefánsson organ­isti og kórstjóri um dömukórinn Gradu­ale Nobili sem fagnar 15 ára afmæli sínu á morgun, 1. nóvember, klukkan 17 með sérstökum tónleikum í Langholtskirkju.

Þar munu fyrrverandi kórfélagar slást í hópinn með núverandi og rifja upp gamla takta.

„Þær taka eiginlega uppáhaldslögin frá upphafi og þegar þær fá að velja sjálfar verða lögin oft í erfiðari kantinum Við erum með fullt af músík sem stúlkurnar hafa notað í keppnum og verk sem hafa verið samin fyrir þær af íslenskum tónskáldum,“ segir Jón stoltur.

Hann rifjar upp að kórinn hafi margoft staðið á verðlaunapalli í alþjóðlegum keppnum og að breska tímaritið BBC Music Magazine valið diskinn Ceremony of Carols / Dancing Day einn af níu áhugaverðustu jóladiskum heims, útgefnum árið 2012.

Miðar á tónleikana verða seldir við innganginn á Langholtskirkju. Þeir kosta 2.500 og 1.500 krónur fyrir meðlimi listafélags kirkjunnar, eldri borgara og námsmenn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×