Fótbolti

Hörður og félagar héldu hreinu annan leikinn í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hörður í eldlínunni.
Hörður í eldlínunni. Vísir/Getty
Hörður Björgvin Magnússon spilaði allan leikinn fyrir Cesena sem hélt hreinu annan leikinn í röð í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Cesena gerði markalaust jafntefli við Palermo á heimavelli, en Palermo var ívið meira með boltann.

Hörður og félagar er eftir jafnteflið í nítjánda sæti deildarinnar með 20 stig, þremur stigum frá öruggu sæti í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×