Enn gift sex árum eftir að farið var fram á skilnað því makinn finnst ekki ingvar haraldsson skrifar 31. júlí 2015 07:00 Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Sæbjörgu Rut Guðmundsdóttur, 31 árs gamalli konu, sem er búsett á Akureyri, hefur ekki tekist að skilja við eiginmann sinn, Mindaugas Bytautas, tólf árum eftir að hún sleit samvistum við hann og sex árum eftir að hún fór fram á skilnað. Ástæða þess er að ekki hefur tekist að hafa upp á Bytautas og birta honum stefnu. Bytautas, sem er frá Litháen, hefur ekki búið hér á landi frá árinu 2006. Sæbjörg höfðar nú í annað sinn dómsmál gegn Bytautas til þess að fá viðurkenndan lögskilnað en hún er nú í sambandi með öðrum manni og á með honum barn.Dögg PálsdóttirDögg Pálsdóttir, aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segir ekki unnt að fá skilnað fyrir dómstólum nema fullreynt þyki að makinn finnist ekki til að birta honum stefnu. Dómstólar vísi hjónaskilnaðarmálum frá hafi birting ekki tekist eða allra leiða ekki verið leitað annarra en stefnubirtingar í Lögbirtingarblaðinu að sögn Daggar. Maðurinn er ekki með skráð heimilisfang í Litháen og segjast stjórnvöld þar í landi ekki vita hvort hann sé búsettur í landinu. Því geti þau ekki birt honum stefnu. Dögg segist sjálf hafa rekið sambærileg mál fyrir dómi. „Ég þekki af eigin raun hvaða vanda þetta getur sett fólk í. Manni finnst að það ættu að vera einhver úrræði. Stundum getur þetta verið partur af einhverri meinfýsi, að skilja makann eftir og hann getur ekki skilið,“ segir Dögg.
Mest lesið Vaktin: Bílaplanið þakið hrauni Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Innlent Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Innlent Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Innlent „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Innlent „Ég ætla ekki að vera föst á þessum Klausturbar“ Innlent Sigmundi vísað úr VMA eftir að hann krotaði á varning annarra flokka Innlent Fleiri fréttir Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun „Fólki er frekar misboðið“ Gosið gætið varað í nokkrar vikur Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Bílaplan á bólakafi, könnun og frambjóðanda misboðið Höfðu ekki áhyggjur af lóninu sjálfu Skilorðsbundinn dómur yfir strætóbílstjóra staðfestur Veit ekki hver getur tekið við gögnunum Refsing Jaguars þyngd verulega Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur takist á í bergmálshelli Samið um sjálfstæða leikskóla í Reykjavík Vilja byggja vísindasetur fyrir almenning í Háskólabíói Útlit fyrir að varnir Bláa lónsins haldi Hart tekist á um fyrirætlanir Heidelberg í Þorlákshöfn Bein útsending: Hver er sýn flokkanna á lífskjör eldra fólks? Verkföll boðuð í fjórum grunnskólum í janúar „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Komust langt að gosinu því það gleymdist að loka veginum Nýsköpun eða „rándýr aðgangur“?: 300.000 króna heilskimun aftur á boðstólnum Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Káfaði á konu á salerni skemmtistaðar Segir komið fram við sig eins og glæpamann fyrir að vilja vera heima í Grindavík „Ekki rólegur með hraunið ofan á“ Samfylkingin bætir við sig í fyrsta sinn síðan í maí og Píratar úti Varar við sprengjum á svæðinu við gosstöðvarnar Glóðvolg könnun og hraun rennur enn á ný Gandri fær grænt ljós Magnaðar myndir sýna Grindavíkurveg undir hrauni Sjá meira