Erlent

Ók inn á afgirt svæði í París og flúði

Bjarki Ármannsson skrifar
Tour de France lýkur í París í dag.
Tour de France lýkur í París í dag. Vísir/AFP
Lögregla í Frakklandi leitar nú ökumanns sem reyndi að aka bifreið sinni inn á svæði sem hafði verið afgirt vegna hjólreiðakeppninnar Tour de France. Atvikið átti sér stað á Champs Elysees breiðgötunni í París nú í morgun en keppninni lýkur í París í dag.

Lögreglumenn hleyptu af skotum í átt að bílnum er hann keyrði inn á svæðið til að reyna að fá ökumanninn til að nema staðar. Hann keyrði þó í burtu. Að því er fréttastofa BBC greinir frá, bendir ekkert til þess að um tilraun til hryðjuverks hafi verið að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×