Erlent

Þrír fórust í flugslysi í Tokyo

Bjarki Ármannsson skrifar
Slökkviliðsmenn í Tokyo segja að tveir til viðbótar hafi slasast hið minnsta.
Slökkviliðsmenn í Tokyo segja að tveir til viðbótar hafi slasast hið minnsta. Vísir/EPA
Þrír fórust þegar lítil flugvél brotlenti í Tokyo í Japan snemma í morgun. Vélin brotlenti í íbúðarhverfi stuttu eftir að hún lagði af stað frá Chofu flugvellinum, með þeim afleiðingum að tveir um borð í vélinni og einn íbúi hverfisins létu lífið.

Sömuleiðis kviknaði í bæði húsum og bílum. Slökkviliðsmenn í Tokyo segja að tveir til viðbótar hafi slasast hið minnsta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×