Íslenski boltinn

Kröfur eða kjaftæði | Elísabet heldur fyrirlestur um þjálfun fótboltakvenna fyrir KSÍ

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elísabet Gunnarsdóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir með Íslandsmeistarabikarinn 2008.
Elísabet Gunnarsdóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir með Íslandsmeistarabikarinn 2008. Vísir/Stefán
Elísabet Gunnarsdóttir, margfaldur meistaraþjálfari hér heima á Íslandi og þjálfari í sænsku úrvalsdeildinni í sjö ár, mun halda athyglisverðan fyrirlestur á námskeiði KSÍ um líkamlega þjálfun kvenkyns leikmanna.

KSÍ heldur þetta námskeið 8. til 9. janúar næstkomandi og kynnir það á heimasíðu sinni. Námskeiðið gefur fimm endurmenntunarstig á UEFA A og UEFA B þjálfaragráðum ef mætt er báða dagana, en fjögur ef einungis er mætt á laugardeginum.

Námskeiðið verður haldið í Kórnum föstudaginn 8. janúar frá 20:00-21:00 og í húsakynnum KSÍ laugardaginn 9. janúar frá 10:00-14:00.

Undanfarin tvö til þrjú ár hefur það verið áberandi í flestum landsleikjum U17 og U19 kvenna að andstæðingar Íslands hafa verið í betra ásigkomulagi líkamlega en íslensku liðin.

Síðastliðið ár hafa verið gerðar margskonar líkamlegar mælingar á leikmönnum allra kvennalandsliðanna og niðurstöður benda til þess að þörf sé á átaki í líkamlegri þjálfun leikmanna í 11 manna bolta kvenna á Íslandi. Fyrirlesarar munu meðal annars leggja fram gögn þessu til stuðning og koma með tillögur að lausnum.

Fyrirlestur Elísabetar Gunnarsdóttur heitir Kröfur eða kjaftæði og fer fram milli tvö og fjögur á laugardeginum. Elísabet gerði Valskonur fjórum sinnum að Íslandsmeisturum áður en hún fór út til Svíþjóðar og tók við úrvalsdeildarliðinu Kristianstads DFF sem hún hefur þjálfað frá árinu 2009.

Námskeiðsgestir fá einnig að fylgjast með því á föstudagskvöldinu þegar Kristján Ómar Björnsson framkvæmir mælingar á leikmönnum í sautján ára landsliði kvenna.

Námskeiðsgjald er fimm þúsund krónur og innifalin er hádegisverður á laugardeginum. KSÍ kvetur þjálfara í ellefu manna bolta kvenna sérstaklega til að mæta á námskeiðið.



Fyrirlesarar á námskeiðinu verða þrír og þeir eru:

 - Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Kristianstads DFF í Svíþjóð, en hún mun fjalla um hvernig líkamlegri þjálfun er háttað hjá Kristianstads DFF og í sænska kvenna fótboltanum.  

 - Kristján Ómar Björnsson en hann framkvæmir líkamleg próf á kvennalandsliðum Íslands. Hann mun leggja fram niðurstöður mælinganna og fara ítarlega í framkvæmd þeirra. Hann mun einnig koma með tillögur að æfingum til að bæta líkamlegt ástand leikmanna.

 - Dean Martin sem sér um líkamlega þjálfun meistaraflokks kvenna hjá Breiðabliki. Hann mun kynna hvernig hann vinnur með liðið og einstaklinga innan þess.



Dagskráin

Föstudagur 8. janúar, Kórinn

20:00-21:00        Kristján Ómar framkvæmir mælingar á U17 ára landsliði kvenna

Laugardagur 9. janúar, höfuðstöðvar KSÍ á Laugardalsvelli

10:00-11:00        Mælingar kvennalandsliðanna - Kristján Ómar Björnsson

11:10-11:40        Líkamlega þjálfun mfl. kvenna hjá Breiðabliki - Dean Martin

11:40-12:40        Matarhlé

12:40-14:00        Kröfur eða kjaftæði - Elísabet Gunnarsdóttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×