Lífið

Unglingsstúlkur trylltar í tækni

Guðrún Ansnes skrifar
Tæknisnillingar framtíðarinnar stilla sér upp í Sólinni í Háskólanum í Reykjavík.
Tæknisnillingar framtíðarinnar stilla sér upp í Sólinni í Háskólanum í Reykjavík. Vísir/GVA
Um eitt hundrað stúlkur úr níundu bekkjum Fellaskóla, Hólabrekkuskóla, Ölduselsskóla og Árbæjarskóla komu saman í gær til að fagna Stelpu- og tæknideginum í Háskólanum í Reykjavík, í samstarfi við Ský og Samtök iðnaðarins.

Dagurinn var tileinkaður stúlkum og tækni og er haldinn hátíðlegur víða um Evrópu, sem Girls in ICT Day. Hér var honum fagnað í annað skipti.

Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, segist binda miklar vonir við að dagurinn skili sér til komandi kynslóða enda sé um verðugt verkefni að ræða. „Staðan er svoleiðis að við Íslendingar stöndum öðrum Evrópulöndum að baki þegar kemur að tæknimenntun,“ segir hann og bendir jafnframt á að í ofanálag séu karlar í miklum meirihluta þegar kemur að umsóknum í tækninám. „Auðvitað viljum við efla hlut allra, en við verðum að tryggja að bæði kynin sjái tækifærin í náminu. Það er lykillinn að fjölgun.“

Ari segist reyndar farinn að sjá fjölgun kvenna í tæknigeiranum og nú hafi hlutfall kvennemenda í upplýsingatækni í skólanum verið í kringum einn fjórða, en ekki sé ýkja langt síðan staðan var allt önnur. „Það er einfaldlega hagur okkar allra að efla stöðu kvenna í tækninámi, því aukinn fjölbreytileiki skilar sér beinlínis í auknum gæðum.“

Ýmsar vinnusmiðjur stóðu stúlkunum til boða í gær og fengu þær að prófa sig áfram í því sem heillaði þær, svo sem forritun og vefsíðugerð. Í framhaldinu fengu þær að velja á milli tæknifyrirtækjanna Meniga, Tempó, Betware og Mentor og fengu að fylgjast með daglegri starfsemi þar.

Þótti dagurinn takast afbragðs vel og engum blöðum um það að fletta að hér eru tæknisérfræðingar framtíðarinnar í blússandi mótun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×