Lífið

Tímarit og ný plata á leiðinni frá Frank Ocean

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Frank Ocean í úlpu frá 66°N þegar hann kom hingað til lands.
Frank Ocean í úlpu frá 66°N þegar hann kom hingað til lands. mynd/kelly clancy
Bandaríski tónlistarmaðurinn Frank Ocean hefur í nógu að snúast því framundan hjá honum er bæði ný plata auk þess að hann ætlar að ráðast í útgáfu tímarits. Bæði eru væntanleg í júlí.

Myndin sem Ocean birti af sér á heimasíðu sinni með tímaritin.mynd/frank ocean
Ocean deildi mynd á heimasíðu sinni þar sem hann situr yfir stafla af tímaritum og segir að hann eigi tvær útgáfur. Í kjölfarið fylgdu nokkur kassamerki, meðal annars #BOYSDONTCRY. 

Í samtali við Billboard staðfesti hann að um plötu og tímarit væri að ræða og að þau væru væntanleg í júlí. Platan verður þriðja plata kappans en hún hefur ekki fengið nafn ennþá þó því hafi verið gert í skóna að hún muni fá nafnið Boys Don‘t Cry.

Önnur plata kappans, Channel Orange kom út 2012 og fékk frábæra dóma en kjölfar hennar, í júlí 2013, kom kappinn til Ísland og hélt tónleika við frábærar undirtektir áhorfenda. Ocean er mikið ólíkindatól og hann veit ekki hvernig honum hentar best að koma andagiftinni frá sér en í viðtali árið 2012 sagði hann að honum gæti jafnvel dottið í hug að hanna hús í Stokkhólmi ef hann væri í þannig skapi.


Tengdar fréttir

Fjölmenni á Frank Ocean

Það var gríðarleg stemning á tónleikum Frank Ocean í Laugardalshöllinni í kvöld og troðfullt út úr dyrum.

Ocean á plötu ársins

Ef rýnt er í erlenda árslista á bandaríski tónlistarmaðurinn Frank Ocean plötu ársins, Channel Orange. Jack White og Kendrick Lamar eru líka ofarlega á blaði.

Frank Ocean djammaði á Dolly

Tónleikar bandaríska tónlistarmannsins Franks Ocean fóru fram í Laugardalshöllinni á þriðjudagskvöldið. Fullt var út úr dyrum og tónleikagestir virtust hæstánægðir með frammistöðu kappans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×